Af hverju skiptir máli að lyfta lóðum eftir sextugt?

Af hverju skiptir máli að lyfta lóðum eftir sextugt?

Af hverju skiptir máli að lyfta lóðum eftir sextugt?

Það er algengur misskilningur að styrktarþjálfun sé bara fyrir unga fólkið eða þá sem vilja „stækka vöðvana“.

Raunin er sú að styrktarþjálfun verður mikilvægari með aldrinum, sérstaklega fyrir konur.

Eftir tíðahvörf breytist líkaminn hraðar en margir gera sér grein fyrir.

Vöðvamassi minnkar, bein veikjast og orkan getur orðið minni.

Hér eru 6 ástæður af hverju þú ættir að byrja að lyfta lóðum eftir sextugt.

1. Verndar gegn beinþynningu

Rannsóknir sýna að konur geta tapað allt að 1–2% af beinmassa á ári eftir tíðahvörf.
Styrktarþjálfun, sérstaklega með lóðum, hefur sýnt fram á að:

  • Styrkja beinin
  • Hægir á beinmissi
  • Dregur úr hættu á beinbrotum

Þetta skiptir gríðarlega miklu máli, því mjaðmabrot og önnur beinbrot geta haft mikil áhrif á lífsgæði.

2. Viðheldur og byggir upp vöðvamassa

Frá um fertugu byrjar líkaminn smám saman að missa vöðva, ferli sem kallast sarcopenia.

Rannsóknir hafa sýnt að jafnvel konur á sjötugs- og áttræðisaldri geta enn:

  • Aukið vöðvastyrk verulega
  • Bætt jafnvægi og hreyfigetu
  • Fundið fyrir meiri orku í daglegu lífi

Þetta þýðir einfaldlega:

Það verður auðveldara að fara upp stiga, bera inn innkaupapoka og hreyfa sig án verkja

3. Minnkar líkur á byltum

Byltur eru ein algengasta orsök alvarlegra meiðsla hjá eldri konum.

Styrktarþjálfun hjálpar með því að:

  • Bæta jafnvægi
  • Styrkja miðjuna og fætur
  • Auka viðbragðshraða

Rannsóknir benda til að markviss styrktarþjálfun geti dregið úr byltuhættu umtalsvert.

4. Styður við efnaskipti og þyngdarstjórnun

Með aldrinum hægir á efnaskiptum, sem getur leitt til þyngdaraukningar þó mataræði breytist lítið.

Vöðvar eru „virkur vefur“ sem:

  • Brenna meiri orku en fita
  • Hjálpa líkamanum að nýta orku betur

Með því að viðhalda vöðvamassa er auðveldara að halda jafnvægi í þyngd.

5. Hefur jákvæð áhrif á andlega líðan

Þetta gleymist oft.

Rannsóknir sýna að styrktarþjálfun getur:

  • Minnkað einkenni þunglyndis
  • Aukið sjálfstraust
  • Bætt almenna líðan

Það að finna að líkaminn sé sterkur og fær um hluti hefur bein áhrif á hvernig manni líður.

6. Getur bætt svefn og orku yfir daginn

Margir finna fyrir léttari svefni með aldrinum. Regluleg hreyfing, þar á meðal styrktarþjálfun, hefur verið tengd við:

  • Betri svefngæði
  • Meiri orku yfir daginn
  • Minni þreytu

En hvernig tekur maður sín fyrstu skref?

Það getur verið yfirþyrmandi að ganga einn inn í líkamsræktarstöð og ætla „að byrja“.

Stór líkamsræktartæki alls staðar, fólk sem virðist vita nákvæmlega hvað það er að gera og maður sjálfur ekki alveg viss hvar á að byrja.

Það er mjög eðlilegt að líða svona.

Það sem rannsóknir og reynsla sýna er að langflestir halda sig betur við hreyfingu þegar það er einhver rammi utan um hana.

Besta leiðin til að byrja er yfirleitt að:

  • Skrá sig á námskeið
  • Mæta í opna tíma á tímatöflu
  • Fá þjálfara til að hjálpa sér að byrja

Einnig velja margir frekar minni og persónulegri líkamsræktarstöðvar. Þar getur verið auðveldara að kynnast fólki, fá leiðsögn og finna öryggi.

Og eitt sem getur skipt meira máli en margir halda:

Að fara með einhverjum sem þú þekkir

  • Vinkona
  • Systir
  • Maki
  • eða einhver sem er nú þegar að æfa

Það getur verið mikill kostur að fara með einhverjum sem þekkir staðinn, sýnir þér hvernig hlutirnir virka og hjálpar þér að komast yfir fyrsta þröskuldinn.

Að byrja saman, eða fá smá „leiðsögn“ frá einhverjum sem þú þekkir, gerir þetta miklu léttara.
Og oft líka skemmtilegra.

Líkamsræktarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu sem þú gætir byrjað að skoða

Hreyfing

  • Mjög mikið úrval af tímum
  • Leikfimi, styrktartímar og rólegri tímar
  • Oft með tíma sem henta vel 50+
  • Góður staður til að byrja í hóp
  • Allt hreint, góð aðstaða og heitir pottar

World Class

  • Margar stöðvar um allt höfuðborgarsvæðið
  • Frítt í sund
  • Fjölbreyttir opnir tímar, t.d. styrkur, liðleiki og yoga
  • Auðvelt að finna tíma sem henta byrjendum
  • Sumir stöðvar með rólegra andrúmsloft en aðrar
  • Þjálfari í sal er innifalinn við kaup á korti

Katla Fitness

  • Minni stöð, oft persónulegri nálgun
  • Hóptímar og þjálfun í litlum hópum
  • Hentar vel þeim sem vilja meiri leiðsögn

Sporthúsið

  • Hóptímar og þjálfun
  • Hentar mörgum sem vilja rólegri byrjun

Jóga og Pilates stúdíó

  • Rólegri inngangur að hreyfingu
  • Gott fyrir jafnvægi, styrk og líkamsvitund
  • Mjög vinsælt hjá konum yfir 50
  • Persónuleg þjálfun

Fæðubótarefni fyrir fólk á besta aldri sem vill líða sem best í eigin líkama.

Back to blog