Fimm innihaldsefni sem geta aukið fitubrennslu hjá konum
Það er engin ein töfralausn en þessi innihaldsefni hafa sýnt árangur hjá konum um allan heim.
Að reyna að losna við óþarfa fitu er ekki einfalt.
Sérstaklega eftir fertugt þegar efnaskiptin hægjast, hormónin breytast og orkuleysið læðist oftar að.
Þú ert ekki ein í þessari baráttu, margar konur upplifa það sama og vita hversu svekkjandi það getur verið að prófa mismunandi leiðir án þess að sjá raunverulegan árangur.
Góðu fréttirnar eru að það eru til náttúruleg innihaldsefni sem geta stutt líkamann á leiðinni.
Hér eru fimm þeirra sem hafa verið rannsökuð og notuð m.a. þegar kemur að fitubrennslu fyrir konur.
1. CLA Fitusýra
Fitusýra sem finnst náttúrulega í mjólkur- og kjötvörum. Rannsóknir hafa sýnt að CLA getur stutt við eðlilega líkamsþyngd og fitubrennslu yfir lengri tíma. Þess vegna er þetta eitt af mikilvægustu innihaldsefnunum í Brennslu.
2. L-Carnitine
Amínósýru-afleiða sem hjálpar líkamanum að flytja fitu inn í frumur og umbreyta henni í orku. Hefur verið mikið rannsakað og er eitt af mest notuðu innihaldsefnum í "fat burners".
3. Túrmerik
Þekkt fyrir bólgueyðandi eiginleika og hefur verið mikið notað í heilsurækt síðustu ár. Getur stutt almenna heilsu og jafnvægi, sem skiptir máli þegar markmiðið er að losna við óþarfa fitu.
Vinsælar vörur
4. Psyllium husk trefjar
Náttúrulegir trefjar sem þenjast út í maga og skapa seðjunartilfinningu. Geta hjálpað til við að halda skammtastærðum eðlilegum og styðja við heilbrigða meltingu.
5. MCT olía (úr kókos hnetum)
Inniheldur miðlungskeðju fitusýrur sem líkaminn umbreytir hratt í orku. Veitir jafna orku án koffíns og getur hjálpað til við að halda orkustigi stöðugu yfir daginn.
Besta leiðin til að losna við óþarfa fitu?
Besta leiðin til þess að losa sig við óþarfa fitu er og verður alltaf holl hreyfing sem hentar þér í bland við fjölbreytt og hollt mataræði.
Það mun aldrei neitt geta komið í staðin fyrir það.
En að því sögðu er aldrei verra að prófa að leita sér nýrra leiða til að aðstoða sig í því.
Sum fæðubótarefni geta t.d. hjálpað þér að halda skammastærðum eðlilegum, minnkað sykurlöngun og gefið þér meiri orku.
Þannig gæti orðið auðveldara að hreyfa sig meir, forðast sætindi og passa græðgina á matmálstímum.
Það er þannig sem bestu fæðubótarefnin virka. Engir töfrar, bara aðstoð við það sem þarf að gera til að ná árangri.
Hér að neðan ætla ég kynna þér fyrir fæðubótarefni frá okkur sem heitir BRENNSLA.
Það inniheldur vítamín, trefja, og jurtir sem við meðal annars töluðum um hér að ofan.
Styður við heilbrigða fitubrennslu
Í stað þess að taka mörg mismunandi bætiefni geturðu fengið öll þessi innihaldsefni saman í einni formúlu.
BRENNSLA er náttúruleg, koffínlaus formúla sem sameinar helstu innihaldsefni til að styðja fitubrennslu, jafnvægi og orku á einfaldan hátt.