• Auglýsing. Í þessari grein nefnum við m.a. fæðubótarefni sem við seljum sjálf. Það breytir þó ekki markmiði textans sem á að vera áhugaverður.

Fimm vítamín sem eru talin góð fyrir konur

Þó besta leiðin sé alltaf að fá næringuna úr fjölbreyttri fæðu, þá vita flestar konur að það tekst ekki á hverjum degi. Með réttu vítamínunum getur þú hjálpað líkamanum að halda orku, jafnvægi og vellíðan alla daga.

Að halda orkunni og jafnvæginu eftir fertugt er ekki alltaf einfalt.

Líkaminn breytist, hormónin sveiflast og jafnvel þótt þú borðir hollt getur þreytan og orkuleysið læðst að.

Þú ert alls ekki ein, margar konur finna fyrir því sama og vita hversu svekkjandi það getur verið að reyna að gera allt “rétt”, en samt ekki finna fyrir raunverulegum mun.

Góðu fréttirnar eru að það eru til náttúruleg næringarefni sem geta hjálpað líkamanum að virka betur, endurnærast og halda jafnvægi.

Hér eru fimm þeirra sem flestar konur yfir fertugt ættu ekki að sleppa.

grunnur fjölvítamín inniheldur jurtir sem styðja heilsu

1. B-vítamín blanda

Oftast er talað um B1, B2, B3, B5, B6, og B12 vítamín. B-vítamín gegna mikilvægu hlutverki í starfsemi taugakerfis, húðar, hárs og andlegri líðan.

Þar sem líkaminn getur ekki geymt mikið af B-vítamínum, þarf reglulegt inntak þeirra – annað hvort úr fæðu eða bætiefnum – til að viðhalda jafnvægi og orku yfir daginn.

Þess vegna er þetta mikilvægur partur af Grunni

vítamín fyrir konur

2. Folate (fólinsýra)

Fólínsýra (eða folate) tilheyrir B-vítamín fjölskyldunni og tekur þátt í myndun rauðra blóðkorna og nýmyndun DNA. Hún skiptir einnig máli fyrir frumuvöxt og er sérstaklega mikilvæg á tímabilum hraðrar frumumyndunar, eins og við þungun eða vöxt.

3. D-vítamín

Líkaminn framleiðir D-vítamín úr sólarljósi – en þegar birtan minnkar, þá minnkar líka framleiðslan. D-vítamín styður við ónæmiskerfið, beinin og andlega líðan. Konur með lágt D-vítamín finna oft fyrir vöðvaverkjum og orkuleysi.

grunnur fjölvítamín fyrir konur steinefni

4. Magnesíum

Magnesíum hjálpar líkamanum að slaka á – bæði andlega og líkamlega. Það hefur áhrif á vöðvaspennu, svefn og streitustjórnun. Konur sem fá lítið af magnesíum lýsa oft spennu, pirringi eða kvíða.

Hvernig styrkja sink og C-vítamín húð og stuðla að kollageni

5. Zinc og Seleníum

Þessi tvö snefilefni vinna saman að frumumyndun og viðhaldi húðar og hárs. Þegar sink og selen eru í jafnvægi virkar ónæmiskerfið betur, húðin fær meiri ljóma og hárið verður sterkara.

Einföld leið til að tryggja að maður fái þetta allt?

Besta leiðin til að viðhalda orku, jafnvægi og almennri heilsu er og verður alltaf að borða fjölbreyttan og næringarríkan mat, sofa vel og hreyfa sig reglulega.

Það mun engin tafla eða flaska nokkurn tíma geta komið í staðinn fyrir það.

En að því sögðu getur verið gott að styðja við líkamsstarfsemina með daglegum vítamínum og steinefnum – sérstaklega þegar lífið er á fullu og mataræðið nær ekki alltaf að dekka allt sem líkaminn þarf.

Þannig fær líkaminn þann grunn sem hann þarf til að starfa eðlilega, viðhalda orku og jafnvægi, og styðja við húð, hár, ónæmiskerfi og efnaskipti.

Hér að neðan kynni ég þér fjölvítamín fyrir konur yfir fertugt, sem inniheldur þau næringarefni sem flestar konur hafa gagn af að fá reglulega.

Grunnur fjölvítamín fyrir konur á Íslandi – náttúrulegt val fyrir daglega heilsu og vellíðan.

Fjölvítamín fyrir konur

Í stað þess að taka mörg mismunandi vítamín og steinefni geturðu fengið þau saman í einni vel samsettri formúlu.

Grunnur sameinar helstu næringarefni sem styðja við orku, jafnvægi og almenna vellíðan – á einfaldan og þægilegan hátt.

Sjá hvernig Grunnur virkar